Smáréttir & fingurmatur
Gerðu góða stund enn betri með ljúffengum smáréttum og fingurmat frá Finnsson.
Smáréttirnir okkar eru fjölbreyttir og vandlega samsettir með áherslu á gott hráefni og ljúffengt bragð. Þeir henta einstaklega vel fyrir fundi, fyrirtækjaviðburði, móttökur, skírnir, afmæli, fjölskylduboð og aðra viðburði í prívatrýmum okkar.
Hversu marga smárétti á að reikna á mann?
Það fer fyrst og fremst eftir því hvenær dags viðburðurinn er haldinn og hvort veitingarnar eiga að vera léttir bitar eða koma í stað máltíðar.
- Léttar móttökur og viðburðir: Um 5 einingar á mann.
- Smáréttir í stað máltíðar: Um 8 einingar á mann.
Hver smáréttur er u.þ.b. tveir til þrír munnbitar að stærð. Við aðstoðum ykkur við að velja hæfilegt magn og fjölbreytni fyrir ykkar viðburð ef þess er óskað.
Lágmarkspöntun er 20 einingar af hverri tegund smárétta og fingurmatar og 10 einingar af hverri tegund kaffisnittna.
Má koma með eigin köku?
Að sjálfsögðu! Hvort sem um er að ræða skírnarköku, afmælisköku eða aðra hátíðarköku er ykkur hjartanlega velkomið að koma með eigin köku.
Séróskir og sérsniðnar veitingar
Ertu með aðrar hugmyndir eða óskir um veitingar fyrir þinn viðburð? Ásgeir Erlingsson yfirkokkur Finnsson getur skoðað aðrar útfærslur á veitingum sem henta tilefninu ef þess er óskað.
Prívatrýmin okkar
Við bjóðum upp á glæsileg prívatrými fyrir bæði minni og stærri viðburði. Veitingar ganga upp í leigu á prívatrýmunum.
Við hjálpum ykkur að gera góða stund að skemmtilegri veislu.
Sendið okkur fyrirspurn á info@finnssonbistro.is og við hjálpum ykkur að setja saman veitingar sem henta tilefninu.
Smáréttir & fingurmatur
Verð per einingu · lágmarkspöntun 20 einingar af hverri tegund
Túnfisktartar í tartarskel
700 kr.
Nauta-carpaccio á stökku kexi
700 kr.
Confit önd í tartarbolla
700 kr.
Parmaskinka og parmesan á snittabrauði
700 kr.
Reyktur lax með tartarsósu á stökku brauði
700 kr.
Nautaspjót með hvítlaukssósu
850 kr.
Kjúklingaspjót með trufflumæjó
700 kr.
Djúpsteiktar risarækjur með mangósósu
450 kr.
Chilí maríneraðar tígrisrækjur á spjóti
850 kr.
Rauðrófu carpaccio með gráðosti Vegan í boði
650 kr.
Kaffisnittur, brauðtertur og sætir bitar
Fyrir veislur og kaffiboð
Kaffisnittur
850 kr.
Val um: roast beef, hangikjöt, skinku, lax, rækjur og síld. Hægt er að velja nokkrar tegundir þó lágmark 10 snittur af hverri tegund.
Brauðtertur
frá 25.500 kr.
Val um: skinku og aspas, rækjur eða hangikjöt.
20 manna · 25.500 kr.
30 manna · 38.250 kr.
Heitur brauðréttur fyrir 16 manns
19.800 kr.
Skinka og aspas.
Sætir bitar
450 kr.
Verð per einingu.
Viltu panta smárétti?
Sendu okkur línu eða hringdu og við setjum saman veitingarnar fyrir hópinn þinn.