PRÍVATRÝMI
Stendur eitthvað til?
Við erum með tvö glæsileg prívatrými til leigu fyrir hvers kyns viðburði: Finnsson Vinnustofuna sem er einstaklega fallegt rými og blómlega Búbbluskálann. Leiguverð gengur upp í kaup á veitingum.
PRÍVATHERBERGIÐ
Finnsson Vinnustofan
Glæsilegt herbergi með mikilli lofthæð og sérsmíðuðu 12 manna hringborði með snúningsplötu. Á veggnum er nettengdur skjár sem auðvelt er að tengjast, ásamt hljóðkerfi, stillanlegri lýsingu og þjónustuhnappi. Hægt er að draga gardínur fyrir til að fá fullkomið næði og sérinngangur er í boði fyrir þá sem þess óska.
Vinnustofan hentar vel fyrir fundi með góðum veitingum og fyrir þá sem vilja borða saman í góðu næði.
12 manns við hringborð
BLÓMLEGT PRÍVATRÝMI
Búbbluskálinn
Sannkallað ævintýrarými. Skálinn er aðskilinn frá veitingastaðnum, bjartur og fallega skreyttur blómum, með góðu næði. Borðum er raðað upp sem langborðum eða eins og hentar fjölda gesta.
Inn af Búbbluskálanum er Finnsson Vinnustofan. Þegar opnað er á milli má nýta hana fyrir hlaðborð. Skálinn hentar vel fyrir skírnarveislur, afmæli, fyrirtækjahópa og vinahópa sem vilja gera sér glaðan dag.
35 í sæti · allt að 50 standandi
Bókanir og nánari upplýsingar
Sendu okkur línu og við finnum rétta prívatrýmið og veitingarnar fyrir hópinn þinn. Leiguverð gengur upp í kaup á veitingum.